
NCB stendur fyrir „Nordisk Copyright Bureau“, sem er í sameiginlegri eigu norrænu höfundaréttarsamtakanna. Í umboði þeirra annast NCB leyfisveitingar fyrir útgáfu á föstu formi, t.d. útgáfu á CD og vínylplötum. Þá annast NCB einnig leyfisveitingar fyrir hljóðsetningu, aðallega vegna sjónvarpsframleiðslu. Nánari upplýsingar um þessi leyfi má nálgast á heimasíðu NCB, www.ncb.dk.
Áður fyrr rak STEF útibú fyrir NCB á Íslandi en nú er öll starfsemi NCB í Kaupmannahöfn. STEF veitir meðlimum sínum áfram góðfúslega upplýsingar og aðstoð vegna úthlutana NCB eftir fremsta megni. Öllum fyrirspurnum um útgáfu skal beint til NCB á netfangið ncb@ncb.dk. Kennitala NCB er 410391-2019.
Ef þig vantar upplýsingar, ekki hika við að hafa samband
Heimilisfang
Laufásvegur 40
101 Reykjavík.
Hafa samband
Sími/Tel: (+354) 561 6173
E-mail: info (hjá) stef.is
Opnunartími skrifstofu
Virkir dagar frá:
10:00 til 12:00 & 13:00 til 15:00