Við afhendingu vorstyrkja þann 30. maí var langspil ársins einnig afhent, en það eru sérstök verðlaun STEFs, sem árlega eru veitt höfundi sem skarað hefur fram úr og náð eftirtektarverðum árangri á nýliðnu ári.
Langspilshafi ársins er Bríet Ísis Elfar, en hún hefur á undanförnum árum klifrað hægt og bítandi upp spilunarlista útvarpsstöðva og á netinu, sem hefur eðlilega endurspeglast í auknum úthlutunum frá STEFi – og var síðasta ár metár hvað hana varðar.
Við óskum Bríeti velfarnaðar á komandi árum og vonum verðlaunin verði henni góð hvatning til frekari afreka.
Meðfylgjandi myndir tók Sigríður Marrow (smella til að stækka).