Trú- og lífsskoðunarfélög

Verðskrá STEFs fyrir trú- og lífsskoðunarfélög

Fyrir tónlist sem er flutt í opinberu starfi trú- og lífsskoðunarfélaga skal greiða höfundaréttargreiðslur sem hér segir (skv. verðskrá í apríl 2024):

  • Fyrir hvern meðlim trúfélags, ársfjórðungslega kr. 20, eða kr. 80 á ári.
  • Fjárhæðir þessar taka breytingum í samræmi við lánskjaravísitölu.
  • Sérstaklega skal greiða fyrir tónleika, sem eru sérstaklega auglýstir og þau tilvik þegar kirkjur eða önnur salarkinni eru leigð undir tónleikahald.
  • STEF skuldbindur sig að láta renna í Tónlistarsjóð kirkjunnar og STEFs 20% af þeim greiðslum sem innheimtast frá viðkomandi trúfélagi (nema trú- og lífsskoðunarfélagið óski eftir öðru fyrirkomulagi, en það er ekki skilyrði fyrir því að sækja um styrki í Tónlistarsjóðinn að umsækjandi sé í þjóðkirkjunni.)

    Til útskýringar:
    STEF innheimtir höfundaréttargreiðslur skv. ofangreindri verðskrá og opinberum tölum um fjölda skráðra meðlima trúfélaga ár hvert. Fjárhæðirnar miða við sömu forsendur og samningur STEFs við Þjóðkirkjuna.

Scroll to Top