Höfundarnir okkar
Þessi síða geymir stuttar kynningar á íslenskum tón- og textahöfundum sem sett hafa svip á íslenskt tónlistarlíf fyrr og síðar.
Jónatan Ólafsson
Höfundarnir okkar (1) | 5. okt. 2026
Hefjum þessa rispu á Jónatani Ólafssyni (f. 1914).
Ungur lærði Jónatan á orgel og píanó. Upp úr tvítugu hóf hann að starfa við hljóðfæraleik, lék svo með ýmsum danshljómsveitum og starfrækti um skeið sveit undir eigin nafni. Samhliða stundaði Jónatan m.a. tónlistarkennslu og stýrði kórum.
Jónatan gaf sig fljótlega nokkuð að lagasmíðum, en fyrsta lagið kom út á fjórða áratugnum. Á þessum tíma voru ekki ýkja margir sem fengust við lagasmíðar hérlendis, fluttu músíkantar tíðum erlend lög, þó oft við íslenska texta.
Segja má að fyrsti „smellur“ Jónatans hafi verið ‘Kvöldkyrrð’, sem hinn vinsæli söngvari, Sigurður Ólafsson, bróðir Jónatans, söng inn á plötu 1948. Síðan komu lögin allmörg á næstu árum.
Með þekktustu lögum Jónatans eru ‘Í landhelginni (12 mílur)’ og ‘Landleguvalsinn’, hvort tveggja við texta Núma Þorgbergssonar, en Haukur Morthens gerði bæði lögin afar vinsæl.
Vert er einnig að nefna ‘Laus og liðugur’ (jafnframt við texta Núma), sem annar Morthens gerði eftirminnilega skil í sumpart ‘pönkaðri’ útsetningu árið 1980, en lagið var fyrrum feykivinsælt, bæði í flutningi Ragnars Bjarnasonar og Lúdó & Stefáns.
Jónatan lést árið 1997.
Jóhann Georg Jóhannsson
Höfundarnir okkar (2) | 14. okt. 2026
Jóhann Georg Jóhannsson (f. 1947).
Jóhann ólst upp í Njarðvík og fór ekki varhluta af áhrifum „kanans“, sem á 6. og 7. áratugunum litaði mjög menningu á þessum slóðum. Hann var sjálfmenntaður músíkant, lék með hljómsveitum á yngri árum og var hluti „bítlakynslóðarinnar“ sk. á Suðurnesjum, en þekktust sveita Jóhanns er ‘Óðmenn’.
Hugur hans hneigðist einnig til myndlistar og málaði Jóhann töluvert samhliða tónsköpun, m.a. eigin plötualbúm. Þeirra þekktast er fyrsta breiðskífa hans, ‘Langspil’, sem skreytt er sjálfsmynd, en platan geymir m.a. lagið ‘Don’t Try to Fool Me’, eitt af framúrskarandi lögum Jóhanns.
Frá öndverðu var Jóhann ötull og hagur laga- og textasmiður, svo eftir var tekið. Safnaðist jafnan upp hjá honum efni og tóku útgefendur og músíkantar fljótlega að leita til hans eftir lögum.
Af þekktum verkum Jóhanns má nefna ‘Eina ósk’, ‘Ég er að tala um þig’ og ‘Dagar og nætur’, sem Björgvin Halldórsson söng öll, hið síðastnefnda ásamt Ragnhildi Gísladóttur, sem skömmu síðar hljóðritaði með Grýlunum lag Jóhanns, ‘Fljúgum hærra’.
Einnig mætti nefna ‘Hvers vegna varst’ekki kyrr?’, sem Pálmi Gunnarsson söng, sem og ‘Ég lifi í voninni’ og ‘Við eigum samleið’, sem Stjórnin gerði vinsæl, en hið síðastnefnda var sigurlag ‘Landslagins’ þegar sú söngvakeppni var haldin í fyrsta skipti. ‘Traustur vinur’ fyllir einnig flokk vinsælustu laga Jóhanns, sem og ‘Hjálpum þeim’, en Jóhann samdi þann texta.
Í Jóhanni var sterk félagsmálataug. Á 8. áratugnum stóð hann framarlega í réttindabaráttu „popplagahöfunda“, var einn stofnenda SATT (Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna), en þau voru nk. forveri FTT (Félag tónskálda og textahöfunda), sem fyrir atfylgi Jóhanns og fleiri mætra höfunda öðluðust aðild og aðkomu að stjórn STEFs.
Jóhann lést árið 2013.
Meðfylgjandi ljósmynd: Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Valdís Óskarsdóttir
Jón Sigurðsson
Höfundarnir okkar (3) | 26. okt. 2026
Jón Sigurðsson (f. 1925).
Jón fæddist að Brúnum í Rangárvallasýslu, en var um tvítugt kominn á höfuðborgarsvæðið, hvar hann bjó og starfaði upp frá því, lengst af í Búnaðarbankanum, sem varð til þess að hann hlaut viðurnefnið „Jón í bankanum“, til aðgreiningar frá þekktum alnöfnum hans í tónlistarbransanum.
Hann varð snemma tónhneigður. Harmonika var lengstum helsta hljóðfæri Jóns, þótt einnig væri hann hagur á fleiri instrúment. Á táningsaldri var Jón farinn að semja lög og texta. Eitt af sínum þekktustu lögum, ‘Komdu í kvöld’, samdi Jón aðeins 14 ára. Sagan segir að það hafi orðið til á hestbaki, en hófasláttur fáksins mun hafa blásið Jóni andann í brjóst.
Nokkru eftir komuna á mölina var Jón farinn að leika með hljómsveitum. Lagni hans við lagasmíðar spurðist út og var mikið til hans leitað, einkum eftir söngtextum. Jón var auk þess góður útsetjari og kom að upptökum margra þekktra sönglaga.
Hann lagði til texta við ýmsa af smellum sjötta áratugarins, sem oftast voru erlendir að uppruna, m.a. ‘Hvar varstu í nótt?’, ‘Fjórir kátir þrestir’, ‘Lóa litla á Brú’, ‘Ég vil fara upp í sveit’, ‘Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig’ og ‘Ég er kominn heim’, en hið síðastnefnda er einn ástsælasti óður Íslandssögunnar.
Síðar komu textarnir ‘Ég fann þig’, ‘Sagan af Nínu og Geira’ og ‘Ég gef þér allt mitt líf’, svo fleiri vinsæl lög séu nefnd.
Sum af þekktustu verkum Jóns eru alfarið eftir hann, m.a. ‘Komdu niður’, ‘Í kjallaranum’, ‘Einsi kaldi úr Eyjunum’ og ‘Úti í Hamborg’, sem alnafni Jóns, kenndur við bassa, söng eftirminnilega með Ragnari Bjarnasyni.
Jón lést árið 1992

