BIÐTÓNLIST

Biðtónlist á símalínum...

Fyrir flutning tónlistar í símkerfum (biðtónlist) greiðist leyfisgjald í samræmi við fjölda starfsmanna hjá viðkomandi fyrirtæki svo sem hér segir (árgjald svk. verðskrá í sept. 2026):

Fyrirtæki með allt að 50 starfsmönnum borgar 81.766 kr. á ári og svo 12.710 kr. fyrir hverja 50 starfsmenn eftir það.

Árgjaldið skiptis á milli STEF (62,5%) og SFH (37,5 %).

Ef um er að ræða fyrirtæki með þjónustuver eða þar sem fjöldi innhringinga er hlutfallslega mikill miðað við úthringingar leggst 30% álag ofan á ofangreindar fjárhæðir.

Athugið að leyfið miðist við að fyrirtæki noti ýmsa tónlist á biðlínum sínum, hin og þessi lög til skiptis, en ekki eitt tiltekið lag með ákveðnum listamanni, þannig að farið sé að beintengja viðkomandi lag eða listamann við fyrirtækið. Í slíkum tilvikum þarf fyrirtækið að leita leyfis hjá viðkomandi rétthöfum.

Scroll to Top