Kvikmyndatónlist
Norrænu kvikmynda-
tónskáldaverðlaunin
Árlega frá 2010 hafa farið fram „Norrænir kvikmyndatónlistardagar“ (Nordic Film Music Days), í þeim tilgangi að efla listræn og tónlistarleg samskipti milli Norðurlandanna og vekja almenna athygli á norrænum kvikmyndatónskáldum.
Einkum er horft til þess að auka aðgengi þeirra að evrópskum mörkuðum, en jafnframt tengja norrænt listafólk við lykilákvarðanatökuaðila um allan heim til að stuðla að alþjóðlegu samstarfi.
Fyrstu árin skiptust norrænu löndin á að halda þennan viðburð, en frá 2016 hefur hann ár hvert farið fram í Berlín, samhliða hinni kunnu alþjóðlegu kvikmyndahátíð, „Berlinale“.
Þar eru „norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunin“ afhent og sigurvegari fær hverju sinni afhentan sérstakan verðlaunagrip, „HARPA“, hvers heiti tengist Íslandi.
Fjórum sinnum hafa verðlaunin fallið Íslendingi í skaut. Hér að neðan má sjá lit yfir þá sem hlotið hafa verðlaunin í gegnum árin, sem og nöfn þeirra Íslendinga sem hlotið hafa tilnefningar, með hlekkjum á viðtöl við suma þeirra.

Eðvarð Egilsson hampar „HÖRPU“ sinni í Berlín árið 2024.

Davíð Þór meðtekur „HÖRPU“ í Berlín 2019.
Sigurvegarar og tilnefningar
2010: Haldið í Gautaborg. Sigurvegari: Dani Strömbäck (Finnland) fyrir „Letters to Father Jacob“ (Klaus Härö)
2011: Haldið í Kaupmannahöfn. Sigurvegari: Gaute Storaas (Noregur). Kvikmynd: „Elias og jakten på havets gull“ (Lise I. Osvoll)
2012: Haldið í Reykjavík. Sigurvegari: Fredrik Emilson (Svíþjóð). Kvikmynd: „Kronjuvelerna“ (Ella Lemhagen)
—Íslensk tilnefning: Hilmar Örn Hilmarsson.
2013: Haldið í Þrándheimi (Noregi). Sigurvegari: Tuomas Kantelinen (Finnland). Kvikmynd: „Puhdistus“ (Antti Jokinen)
—Íslensk tilnefning: Daníel Bjarnason og Ben Frost. Kvikmynd: „Djúpið“ (Baltasar Kormákur)
2014: Haldið í Espoo (Finnlandi): Sigurvegari: Matti Bye (Svíþjóð). Kvikmynd: „Faro“ (Fredrik Edfeldt)
—Íslensk tilnefning: Pétur Ben. Kvikmynd: „Málmhaus“ (Ragnar Bragason)
2016: Sigurvegari: Atli Örvarsson. Viðtal. Kvikmynd: „Hrútar“ (Grímur Hákonarson).
—Jóhann Jóhannsson hlaut heiðursverðlaunin þetta ár.
2017: Sigurvegari: Sune Martin (Danmörk). Kvikmynd: „Land of Mine“ (Martin Zandvliet)
—Íslensk tilnefning: Hildur Guðnadóttir. Kvikmynd: „Eiðurinn“ (Baltasar Kormákur)
—Hilmar Örn Hilmarsson var tilnefndur til heiðursverðlauna þetta ár.
2018: Sigurvegari: Daníel Bjarnason. Viðtal. Kvikmynd: „Undir trénu“ (Hafsteinn Gunnar Sigurðsson)
2019: Sigurvegari: Davíð Þór Jónsson. Viðtal. Kvikmynd: „Kona fer í stríð“ (Benedikt Erlingsson)
2020: Sigurvegari: Gaute Storaas (Noregur). Kvikmynd: „Bröllop, begravning & dop“ (Colin Nutley)
—Íslensk tilnefning: Gyða Valtýsdóttir. Viðtal. Kvikmynd: „Mihkel“ (Ari Alexander Ergis Magnússon)
2021: Sigurvegari: Flemming Nordkrog (Danmörk). Kvikmynd: „Shine Your Eyes“ (Matias Mariani)
—Íslensk tilnefning: Hugar (Bergur Þórir Bjarnason & Pétur Jónsson). Viðtal. Kvikmynd: „The Vasulka Effect“ (Hrafnhildur Gunnarsdóttir)
2022: Sigurvegari: Sanna Salmenkallio (Finnland). Kvikmynd: „Aalto“ (Virpi Suutari)
—Íslensk tilnefning: Tóti Guðnason. Viðtal. Kvikmynd: „Dýrið“ (Valdimar Jóhannsson)
2023: Sigurvegari: Jørund Fluge Samuelsen (Noregur). Kvikmynd: „Alle hater Johan“ (Hallvar Witzø)
—Íslensk tilnefning: Eðvarð Egilsson og Páll Ragnar Pálsson. Viðtal. Kvikmynd: „Skjálfti“ (Tinna Hrafnsdóttir)
2024: Sigurvegari: Eðvarð Egilsson. Viðtal. Kvikmynd: „Smoke Sauna Sisterhood“ (Anna Hints)
2025: Sigurvegari: Kåre C. Vestrheim, Andréa L. Horstad, Kristoffer Lo & Eivind Helgerød (Noregur). Sjónvarpsserían „Makta“
—Íslensk tilnefning: Högni Egilsson. Viðtal. Kvikmynd: „Snerting“ (Baltasar Kormákur)
2026: Sigurvegari: Panu Aaltio (Finnland). Kvikmynd: „Little Siberia“ (Dome Karukoski)
—Íslensk tilnefning: Viktor Orri Árnason og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir. Viðtal. Kvikmynd: „Poems: A Journey Through Icelandic Poetry“ (Robin Thomson)

