Á dögunum voru tilnefningar til Norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunanna kynntar. Fyrir Íslands hönd er GABRÍEL ÓLAFS tilnefndur fyrir tónlist í kvikmyndinni Staatsschutz (e. Prosecution), í leikstjórn Faraz Shariat.
Í kynningu dómnefndar segir m.a.: „Tónlist Gabríels er áhrifamikill og órjúfanlegur hluti af dramatískri frásögn myndarinnar. Tónlistinni er hóflega beitt, en af mikilli næmni fellur hún vel að myndmálinu, sem gefur hverri innkomu hennar aukið vægi.“
Verðlaunin verða afhent í Berlín þann 13. febrúar nk.
Við óskum Gabríel til lukku með tilnefninguna og velfarnaðar á komandi árum.
- Sjá nánar um tilnefningarnar hér, á vefsvæði Nordic Film Music Days.
- Nánar um tilnefningu Gabríels.
- Hér má sjá kynningarstiklu úr myndinni.


