Seinni tónleikaúthlutun ársins hefur nú verið greidd út. Nam hún um 57 milljónum króna og er þetta hæsta einstaka tónleikaúthlutun STEFs til þessa.
Fyrri úthlutunin var í maí (28,7 m) þannig að alls var í ár úthlutað 85,7 milljónum fyrir tónleikahald, sem er metupphæð á einu ári.
Alls fengu 1.406 rétthafar úthlutað í þessum tveimur úthlutunum (þar af 651 í báðum).
Þessar úthlutanir taka jafnt til formlegra tónleika sem og hvers konar mannamóta og skemmtana, m.a. bæjar- og árshátíða. M.ö.o. hvarvetna þar sem tónlist er flutt opinberlega.
Það er áhugavert að bera saman landslagið nú og fyrir Covid-tímann; síðasta heila árið fyrir faraldur (2019) var úthlutað alls 29 milljónum (núvirði). Þannig að óhætt er að segja að tónleikahald sé aftur orðið býsna blómlegt.
Vert er að minna rétthafa á að skila inn lagalistum í kjölfar opinberra skemmtana (í gegnum „Mínar síður“).


