Nú stendur yfir þjónustukönnun STEFs, þar sem leitast er eftir því að greina álit og viðhorf rétthafa til STEFs, sem og hug til áskorana sem höfundar standa frammi fyrir.
Búið er að senda út tölvupóst til allra rétthafa.
Álit höfunda og rétthafa á starfsemi og þjónustu STEFs skiptir okkur miklu máli. Við biðjum ykkur vinsamlegast að taka þátt, það tekur aðeins um 6 mínútur að svara, sama tíma og það tekur þig að hlusta á lögin „Gleðibankinn“ og „Draumur um Nínu“ ![]()
Svörin eru að sjálfsögðu ónafngreinanleg. En þeir sem vilja geta skilið eftir netfang við lok könnunar, það fer í raflukkupott sem dregið verður úr og hlýtur heppinn þátttakandi gjafabréf á tónleika í Hörpu.


