Nýverið var undirritaður rammasamningur milli STEFs og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Á vettvangi sveitarfélaga fer fram ýmiss konar opinber tónflutningur, enda tónlist samofin flestum menningarviðburðum, hátíðum og almennum rekstri sveitarfélaga í gegnum ýmsar stofnanir þeirra, jafnt lifandi flutningur sem flutningur af hljóðritum.
STEF hefur þegar samninga við fjölmörg sveitarfélög, en þeir eru komnir til ára sinna, auk þess sem ekki hefur verið nægilegt samræmi á milli þeirra, t.a.m. hvað varðar gildissvið.
Hinn nýi samningur myndar ramma utan um samninga sem STEF mun þó samt sem áður þurfa að gera við hvert og eitt sveitarfélag. Í honum er gildissvið eldri samninga útvíkkað töluvert, auk þess sem hann mun stuðla að samræmi milli sveitarfélaga.
Samningurinn er hugsaður sem nk. fyrirmynd fyrir sveitarfélögin, með viðmiðum varðandi notkun tónlistar, verðlagningu með tilliti til íbúafjölda, innheimtu, o.s.frv. Hann nær einnig til réttinda SFH, fyrir hönd flytjenda og hljómplötuframleiðenda.
STEF mun á næstunni kynna samninginn fyrir sveitarfélögum. Það er von okkar að þau sjái sér hag í því að semja um endurgjald fyrir opinberan tónflutning á þeim nótum sem kveðið er á um í þessum rammasamningi, sem báðir aðilar telja ásættanlegan og sanngjarnan.


