— Stjórn STEFs —
2026-2028

Stjórnarmynd, tekin eftir aðalfund 21. maí 2026. F.v. Hallur Ingólfsson, Páll Ragnar Pálsson, Hrafnkell Pálmarsson, Sóley Stefánsdóttir, María Huld Markan, Bragi Valdimar Skúlason og Magnús Jóhann Ragnarsson. (Mynd: Víkingur)
Stjórn STEFs
2026-2028
Aðalmenn í stjórn:
Bragi Valdimar Skúlason (FTT), formaður
Páll Ragnar Pálsson (TÍ), varaformaður
Hallur Ingólfsson (FTT)
Hrafnkell Pálmarsson (FTT)
María Huld Markan (TÍ)
Sóley Stefánsdóttir (FTT)
Magnús Jóhann Ragnarsson (utan félaga)
Varamenn í stjórn:
Logi Pedro Stefánsson (FTT)
Halldór Smárason (TÍ)
Barði Jóhannsson (FTT)
Anna Gréta Sigurðardóttir (FTT)
Bergrún Snæbjörnsdóttir (TÍ)
Andri Ólafsson (FTT)
Bergur Þórisson (utan félaga)

Guðrún Björk Bjarnadóttir
er framkvæmdastjóri STEFs
Hún er hæstaréttarlögmaður með cand.jur gráðu frá HÍ og viðbótar mastersgráðu í Evrópurétti frá Stokkhólmsháskóla. Áður en hún réði sig til STEFs átti hún að baki farsælan feril sem lögmaður hjá LOGOS lögmannsþjónustu og Samtökum atvinnulífsins. Guðrún Björk hefur einnig sinnt lögfræðikennslu við HÍ og HR og haldið fjölda erinda og fyrirlestra, hin síðustu ár aðallega á sviði höfundaréttar. Hún situr í stjórn NCB (Nordisk Copyright Bureau) sem annast hagsmunagæslu fyrir höfunda á Norðurlöndunum vegna hljóðsetningar og eintakagerðar verka þeirra. Þá situr hún einnig í stjórn Listaháskóla Íslands og í stjórn Hollvina AFS á Íslandi.
Helstu áhugamál Guðrúnar Bjarkar eru hestamennska og tónlist, en hún syngur í kvennakórnum Vox Feminae og er auk þess í gítarnámi hjá Pétri Jónassyni.
Skoðunarmenn reikninga
Kjörnir á aðafundi 2026:
Eyjólfur Kristjánsson (FTT)
Tryggvi M. Baldvinsson (TÍ)
Til vara:
Ingi Gunnar Jóhannsson (FTT)
Finnur Torfi Stefánsson (TÍ)

