Hjálmar hlýtur heiðursmerki

Hjálmari Helga Ragnarssyni var veitt heiðursmerki STEFs í lok tónleika í Hallgrímskirkju á dögunum.

Hjálmar hefur verið atkvæðamikið tónskáld allt frá 1980, eftir heimkomu að loknu framhaldsnámi í Bandaríkjunum og Hollandi. Verk hans spanna allt frá einleiksverkum til stærri sinfónískra verka, frá einsöngslögum til söngleikja og ópera. Hann hefur og samið tónlist fyrir fjölda leiksýninga og kvikmyndir og unnið með kórum og sönghópum, bæði sem tónskáld og stjórnandi.

Hjálmar hefur látið að sér kveða í félagsstarfi listamanna og menningarpólitík, m.a. verið formaður Tónskáldafélags Íslands 1988-92 og forseti Bandalags íslenskra listamanna um átta ára skeið. Þá sat Hjálmar í stjórn STEFs á árunum 1986-1992 og 2018-2020. Hjálmar var ráðinn fyrsti rektor Listaháskólans við stofnun haustið 1998 og stýrði uppbyggingu skóland þar til hann lét af störfum 2013.

Þá hefur Hjálmar unnið við rannsóknir á íslenskri tónlist, m.a. er hann frumkvöðull að endurreisn tónlistar Jóns Leifs. Þá hefur Hjálmar skrifað fjölmargar ritgerðir og greinar um íslenska tónlist og gert útvarpsþætti með íslenskum tónskáldum.

Við óskum Hjálmari innilega til hamingju með verðskuldað heiðursmerkið.

Á myndinni má sjá formann stjórnar STEFs og TÍ, Pál Ragnar Pálsson, sæma Hjálmari heiðursmerkinu. Framkvæmdastjórinn Guðrún Björk fylgist með.

Scroll to Top