STEFnumót á menningarnótt 2024

Um nokkurra ára skeið hefur STEF staðið fyrir tónleikum í bakgarðinum við Laufásveg 40 að degi menningarnætur, sem í ár ber upp á 24. ágúst.

Að þessu sinni koma fram eftirfarandi listamenn:

  • Langi Seli & Skuggarnir
  • Sigga Ózk
  • Úlfur Úlfur
  • Kristín Sesselja

Tónleikarnir hefjast kl. 16 og standa til kl. 18. Aðgangur er ókeypis og verður gestum boðið upp á kaffi og kex.

Scroll to Top