Um helgina var kontrabassaleikarinn kunni, Tómas R. Einarsson, sæmdur heiðursmerki STEFs, en stjórnarmenn sættu færis í Salnum, hvar Tómas og GDRN fögnuðu útkomu nýrrar dúó-plötu.
Tómas hefur á ferlinum komið víða við og verið áberandi í íslensku tónlistarlífi um langt skeið, en segja má að jazzinn hafi átt í honum hvert bein. Tómas er einnig þekktur fyrir brennandi áhuga á latin-músík og hefur sótt sér innblástur til rómönsku Ameríku og gjarna blandað saman latin-áhrifum og jazzi. Varla á nokkurn hallað, með því að fullyrða að Tómas sé konungur latin-jazzins hérlendis. Þessi seiðandi blanda hefur borið með sér suðræna og hlýja strauma, sem yljað hafa hlustendum í stinningskuldanum hér í norðurhöfum.
Fyrsta plata Tómasar kom út 1985, en síðan hafa þær komið ófáar, ýmist sólóplötur, dúó-plötur eða önnur samstarfsverk. Á fjórða hundruð lög eftir Tómas eru skrásett hjá STEFi. Enn bætist í og megi við bætast áfram á komandi árum.
Til hamingju Tómas.
Meðf. mynd tók Þórdís Erla Ágústsdóttir

