Tónlist er mikils virði. Staðfest.

Í fyrra stóðu AKM, systursamtök STEFs í Austurríki, fyrir könnun á áhrifum tónlistar í viðskiptum. Nýlega rak niðurstöðurnar á fjörur okkar. Þær styðja það sem eldri viðlíka kannanir hafa sýnt; í stuttu máli það, að tónlist hefur merkjanleg jákvæð áhrif á kauphegðun og bætir upplifun viðskiptavina jafnt sem starfsfólks.

Eins og fyrri sambærilegar kannanir hafa sýnt, þá dvelja viðskiptavinir lengur í verslunum þegar hæfileg bakgrunnstónlist hljómar, þeir verða tryggari viðskiptavinir, tónlistin hefur jákvæð áhrif á skaphöfn og veldur því að viðskiptavinir eru líklegri til að mæla með viðkomandi verslun við vini og kunningja.

Könnunin sýnir að það færist sífellt í vöxt að rekstraraðilar nýti þjónustu sérhæfðra fyrirtækja við að sérvelja hæfilega tónlist fyrir viðkomandi fyrirtæki, en slíkt eykur enn frekar hin jákvæðu áhrif.

Könnunin leiðir einnig í ljós, að rekstraraðilar sem prófað hafa gervigreindartónlist í sparnaðarskyni, hafa margið horfið af þeirri braut, því viðskiptavinir sem og starfsmenn kunna síður að meta slíka tónlist; hún þykir ópersónuleg, óekta og tilfinningasnauð.

Hægt er að kynna sér niðurstöður könnunarinnar með því að smella hér.

Scroll to Top