—
Hótel & gististaðir
—
Tónlist skapar góða stemningu og eykur viðskipti
Hvort sem tónlistin er notuð til að skapa þægilegt andrúmsloft á hóteli, veitingastað, diskóteki, krá eða á stað þar sem leikin er lifandi tónlist, er hún mikilvægur þáttur í að afla stöðunum tekna.
Tónlistin laðar að
Tónlist er samin af einum eða fleiri höfundum, sem með vísan til höfundalaga geta litið á verk sín sem einkaeign, sem enginn má nota opinberlega nema að veittu leyfi.
Það er mikilvægt að fá heimild frá STEFi áður en gestum er boðið upp á tónlist. Ef tónlist er flutt án heimildar, þá er það brot á höfundalögum, sem getur haft í för með sér aukakostnað og óþægindi.
Ef gistihús eða hótel er með útvarps- eða sjónvarpstæki í gangi á stöðum sem almenningur hefur aðgang að, þá telst vera um opinberan tónflutning að ræða og sækja þarf um leyfi til þess.
Eigendur gistihúsa og hótela sem standa fyrir opinberum flutningi tónlistar í tengslum við reksturinn, eru ábyrgir og skyldugir til að afla leyfis frá STEFi. Leyfið gildir þó aðeins fyrir þær aðstæður sem gefnar eru upp um daglegan rekstur.
Þegar félög, stofnanir og aðrir aðilar halda dansleiki eða veislur í salarkynnunum, þurfa viðkomandi sömuleiðis að afla leyfis hjá STEFi og greiða til STEFs samkvæmt gildandi verðskrá hverju sinni.
ATHUGIÐ: STEF áskilur sér rétt til að skrásetja alla þá lögaðila eða einstaklinga er teljast leyfishafar (rekstraraðilar) á hótelum og gististöðum, samkvæmt leyfisbréfi frá Sýslumanni, ef tónlist er flutt opinberlega í viðkomandi starfsemi.
Ef leyfishafar svara í engu beiðni um upplýsingar vegna notkunar á tónlist og umfangi starfseminnar, þá reiknast 12.000 kr. álag á fyrsta reikning.
Ef í ljós kemur að leyfishafi, sem segist ekki flytja tónlist opinberlega í starfsemi sinni, en er engu að síður að nota tónlist, þá reiknast 50% álag á fyrsta reikning. Verður þá innheimt leyfisgjald frá og með þeim tíma sem í ljós kom að tónlist var sannarlega notuð.
Reiknivél fyrir hótel og gististaði (skv. verðskrá í október 2024)
Mánaðarleg greiðsla fyrir afnot af tónlist.
Félögum í SAF, Samtökum atvinnurekenda í ferðaþjónustu, veitinga- og gistihúsa, er veittur sérstakur afsláttur.