Fulltrúaráð 2026-28
Bjóddu þig fram!

Taktu þátt í að móta starf STEFs

30. janúar 2026

Kosning í fulltrúaráð STEFs 2026-2028 er framundan. Við hvetjum rétthafa til að gefa kost á sér og taka þannig virkan þátt í starfi samtakanna.

Skipan fullrúaráðs

Fulltúaráð er æðsta stofnun STEFs, kjörið af almennum félagsmönnum til tveggja ára í senn. Það fundar að jafnaði tvisvar á ári. Ráðið er skipað 21 fulltrúa. Formenn aðildarfélaga STEFs (Tónskáldafélags Íslands og Félags tónskálda & textahöfunda) eru sjálfkjörnir, en 19 fulltrúar kjörnir í kosningu sem fram fer annað hvert ár. Skulu hið minnsta fimm kjörnir fulltrúar koma úr hvoru aðildarfélagi og fimm hið minnsta úr hópi rétthafa utan félaga.

Hverjir geta boðið sig fram?

Þeir höfundar og aðrir rétthafar sem gert hafa aðildarsamning við STEF hafa atkvæðisrétt og eru kjörgengir í fulltrúaráðið, hafi þeir fengið úthlutað að lágmarki samtals 125.000 kr. á undangengnum þremur árum (þ.e. 2023–2026).

Framboðsfrestur er til 27. febrúar 2026.

Þau, sem einhverra hluta vegna hafa ekki rafræn skilríki, geta hlaðið niður pdf-skjali, fyllt það út, undirritað og sent svo í tölvupósti á info@stef.is, eða komið með á Laufásveg 40.

Scroll to Top