Úthlutun v. streymis | Nýtt verklag | Betri skilagreinar

Nýlega fór fram úthlutun v. streymis, sem markaði þáttaskil, að því leyti, að þetta var fyrsta streymisúthlutun sem gerð er með atfylgi ICE (International Copyright Enterprise), sem STEF samdi við í fyrra (samtímis TONO í Noregi og Teosto í Finnlandi) um að annast bakvinnslu úthlutana v. streymis. Áður hafði NMP séð um þá vinnslu.

Við þessa breytingu standa vonir til þess að úthlutun v. streymis muni aukast nokkuð á næstu árum, í ljósi sterkrar stöðu ICE, sem er leiðandi á sviði fjölþjóðlegra leyfisveitinga fyrir stafræna tónmiðlun og hefur veitt yfir 100 fjölþjóðlegum aðilum leyfi í 245 löndum.

Samstarfið við ICE fór vel af stað og erum við afar ánægð með þeirra vinnu og hvernig til tókst að klára þessa fyrstu úthlutun. Eitt af því sem breytist samhliða þessu, er að nú er hægt að sjá skilagreinar á „Mínum síðum“ með nánari upplýsingum um streymi en áður var hægt (sjá undir ‘almennar úthlutanir’).

— — —

Um ICE (International Copyright Enterprise):

ICE er tónlistartæknifyrirtæki, staðsett í Bretlandi, stofnað af rétthöfum fyrir rétthafa. Það tryggir nákvæmar, gagnsæjar höfundagreiðslur til höfunda og einfaldar leyfisveitingar, m.a. fyrir streymisveitur. Með samstarfi við útgefendur og höfundaréttarsamtök veitir ICE fyrsta flokks leyfis-, vinnslu- og höfundaréttarlausnir. ICE þjónustar yfir 330.000 rétthafa, hefur unnið úr trilljónum tónlistarstreyma og greitt út yfir 5 milljarða evra í höfundagreiðslur frá árinu 2016. ICE rekur höfundaréttargagnagrunn með yfir 55 milljón tónverkum og starfsemi sem nær til yfir 250 landa, í gegnum skrifstofur í Bretlandi, Þýskalandi og Svíþjóð. Sjá: www.iceservices.com

Scroll to Top