Samningur við systursamtök í Ekvador

STEF hefur í gegnum tíðina gert gagnvirka samninga við sambærileg erlend samtök, sem tryggja flæði fjármuna á milli landsvæða, en hver samtök innheimta á sínu svæði og úthluta til þeirra samtaka sem viðkomandi höfundar tilheyra.

Á dögunum bættust samtökin Sayce í Ekvador við lista liðlega 70 erlendra systursamtaka STEFs.

Greiðslur frá systursamtökum til STEFs námu um 180 milljónum króna í fyrra, sem STEF úthlutaði síðan til viðeigandi íslenskra höfunda. Í árs- og gagnsæisskýrslu liðins árs má sjá hvaðan erlendar tekjur til STEFs komu árið 2025.

Hér gefur að líta lista yfir samtök þau sem við höfum samninga við.

Meðfylgjandi ljósmynd er af glaðlegum ekvadorskum gítarleikara.

Scroll to Top