Tónskáldasjóður Jóns Leifs: Samkeppni um nýtt tónverk

Tilkynning 28. okt. 2026:

Tónskáldasjóður Jóns Leifs, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ), auglýsir eftir tillögum að nýju tónverki fyrir sinfóníuhljómsveit.

Umsækjendur skulu senda inn verklýsingu og gögn þau sem nánar er lýst á vefsvæði STEFs, en þar er jafnframt finna þær reglur sem gilda um samkeppnina.

Úr innsendum tillögum verður einn höfundur valinn og fær pöntun að verki fyrir SÍ sem frumflutt verður á Myrkum Músíkdögum 2028. Greiddar verða 2.200.000 kr. fyrir verkið.

Tillögur skulu berast á skrifstofu STEFs, Laufásvegi 40, 101 Reykjavík, eigi síðar en 11. desember 2026. Stjórn sjóðsins ræður þriggja manna valnefnd sem metur tillögurnar og tilkynnir val sitt á Myrkum músíkdögum 2027. 

Jón-Leifs-700x700p

Jón Leifs, fyrsti formaður STEFs.

Reglur og viðmið sem gilda í samkeppninni:

  1. Samkeppnin er nafnlaus. Gögn þau sem að neðan greinir skulu berast í þríriti, í umslagi sem merkt er fjögurra stafa tölu. Nafn höfundar skal hjálagt í lokuðu, hvítu umslagi merktu sömu tölu. Þess skal gætt að nafn höfundar komi hvergi fram á innsendum gögnum.
  2. Samkeppnin er haldin til að heiðra minningu Jóns Leifs. Í þessari fyrstu samkeppni er því sérstaklega höfð til hliðsjónar djörf og framsækin sýn hans á eðli og framtíð tónlistarinnar. Þótt slíkt geti ekki skorið úr um niðurstöðu, þá mun valnefndin meta mikils þennan þátt í innsendum tillögum; hvort verkin eru líkleg eða ekki til að stækka sýn okkar á heiminn.
  3. Umsækjandi skal senda eftirfarandi gögn:
    a) Þrjú sýnishorn af fyrri verkum sínum fyrir stærri hljóðfærahópa eða hljómsveit. Þau ættu að vera um ein raddskrársíða hvert, eða lítið eitt lengri ef þörf þykir. Skjölin skulu merkt Sýnishorn A1, A2 og A3.
    b) Lýsingu á hugmynd að hljómsveitarverki, þar sem einhver eða öll eftirfarandi atriði eru reifuð: Hugmyndafræðilegar eða skáldlegar forsendur, tilvísanir, innblástur eða fyrirmyndir, hugmynd um form og útsetningu verksins — og síðast en ekki síst aðferðir og tónefni að einhverju marki, þótt það geti ekki orðið tæmandi. Umsækjanda er frjálst að bæta við lýsinguna öðru því sem telja má gagnlegt. Lýsingin skal vera að hámarki 1.500 orð.
    c) Vel læsilegar skissur að þremur eða fleiri stöðum í verkinu, til stuðnings við lið b. Hér þarf ekki fullunna raddskrá eða útsetningu fyrir alla hljómsveitina, en lýsandi uppkast sem varpað getur nokkru ljósi á aðferðir og yfirbragð verksins. Skjölin skulu merkt Sýnishorn B1, B2 o.s.frv. Eftir atvikum má sameina skjölin í liðum b og c.
  4. Sá umsækjandi sem valinn verður skal semja hljómsveitarverk, tíu til fimmtán mínútur að lengd.

Verkið skal nýta eftirfarandi hljóðfæraskipun: 3.3.3.3 – 4.3.3.1 – 3slv+pákur – harpa -píanó/hljómborð – strengjadeild (12.10.8.6.4). Hefðbundin aukahljóðfæri eru leyfð innan uppgefinnar hljómsveitarstærðar: Pikkoló og altflauta, ein af hvorri, eitt enskt horn, eitt bassaklarinett, eitt kontrafagott, einn rafbassi.

Engin önnur hljóðfæri en hér eru tilgreind skal þurfa við flutning verksins, en auðflutt rafrás kemur til greina.

  1. Vinningshafi verður beðinn að undirrita samning um skilafrest og nótnafrágang við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Fullfrágengna raddskrá skal afhenda eigi síðar en 5. nóvember 2027 og hljóðfæraraddir eigi síðar en 1. desember 2027.

Allur kostnaður og umsýsla vegna raddskrár og raddskriftar er á ábyrgð höfundar.

  1. Fullnægi höfundur ekki einhverju af ofangreindum skilyrðum, þá verður umsókn hans ógild.
  2. Mat á listrænni sýn, frumleika og fagmennsku umsóknar munu ráða vali valnefndar. Henni er ekki gert að rökstyðja val sitt og ákvörðun hennar er endanleg.

Nefndin áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum.

Scroll to Top