HLJÓÐSETNING
(Hljóð & mynd)
Leyfi fyrir tónlist í kvikmyndum og sjónvarpi
Hljóðsetning/tónsetning myndefnis
Það telst hljóðsetning eða tónsetning (e. synchronisation) þegar hljóði er skeytt saman við mynd.
Fyrir hljóðsetningu þarf bæði leyfi þeirra sem skapað hafa tónlistina (tón- og textahöfunda) og frá þeim sem eiga réttinn að viðkomandi upptöku eða hljóðriti (oft nefnt masterréttur). Það á þó eingöngu við ef nota á tiltekið hljóðrit/upptöku, en ekki ef meiningin er að taka það aftur upp með nýjum flytjanda. Ef svo er, þá þarf eingöngu leyfi tónhöfunda.
Hafi tónhöfundur samið við tónlistarforleggjara (e. publisher), þá er tónlistarforleggjarinn venjulega með umboð til að semja um tónsetningu fyrir hönd höfundarins.
STEF er með umboð fyrir hönd höfunda til að veita hljóðsetningarleyfi vegna þess sem telst vera eigin framleiðsla innlendra sjónvarpsstöðva. Þær sjónvarpsstöðvar, sem eru með samning við STEF um opinberan flutning, hafa einnig samið um leyfi til hljóðsetningar fyrir eigin framleiðslu.
Með „eigin framleiðslu“ er átt við dagskrárefni sem framleitt er af viðkomandi sjónvarpsstöð eða í samstarfi við aðra framleiðendur, þar sem sjónvarpsstöðin ber engu að síður ritstjórnarlega ábyrgð, hefur frumsýningarrétt á Íslandi eða hefur öðlast einkarétt til dreifingar á Íslandi.
Undir þessa heimild sjónvarpsstöðva fellur einnig heimild til að kynna eigin dagskrárgerð á eigin miðlum, þ.m.t. samfélagsmiðlum þar sem sjónvarpsstöðin fer með ritstjórnarvald. Slíkt er hægt að gera með stuttu kynningarefni eða stiklum sem unnið er upp úr eða til kynningar á eigin framleiðslu.
Samskonar kerfi er í ýmsum öðrum löndum (t.a.m. á Norðurlöndunum og í Bretlandi, þó með aðeins mismunandi útfærslum) og í þeim tilvikum eru systursamtök STEFs með heimild til að gera samninga fyrir hönd meðlima STEFs, á sama hátt og fyrir sína eigin meðlimi.
Sé um að ræða að efni, sem telst til eigin framleiðslu sjónvarpsstöðva, en er síðar selt eða dreift annað og út fyrir Norðurlöndin, þá gildir ekki lengur leyfið samkvæmt samningnum við STEF, heldur verður viðkomandi framleiðandi þá að afla nýrra hljóðsetningarleyfa hjá rétthöfum.
Sjónvarpsstöðvar eru síðan ábyrgar fyrir því að skila til STEFs skýrslu um alla hljóðsetningu í sinni eigin framleiðslu (e. cue sheet). —Sjá nánar um sk. cue sheet hér fyrir neðan.
Á þessu leyfi sjónvarpsstöðva er þó sú takmörkun, að fyrir einkennislög einstakra þátta (þ.e.a.s. þegar sömu lögin eru spiluð endurtekið í upphafi og/eða við lok allra þátta sömu þáttaráðar), þá þarf ávallt leyfi höfundarins sjálfs.
Það sama á við um framleiðslu á dramatísku leiknu efni (s.s. þar sem unnið er eftir handriti). Einnig er það svo, að kynningar á sjónvarpsstöðinni sjálfri, t.d. dagskrá stöðvarinnar í heild eða t.a.m. jóladagskrá, teljast til eiginlegra auglýsinga sjónvarpsstöðvarinnar og þarf sérstakt leyfi rétthafa til að nota tónlist í þeim tilgangi.
Þá ber sjónvarpsstöð ávallt að gæta sæmdarréttar höfundar.
Vert er að benda á í þessu sambandi, að samningar höfundaréttarsamtaka við bæði YouTube og Meta (Facebook og Instagram), svo og TikTok, taka ekki bara til flutnings verka, heldur einnig hljóðsetningar á þessum miðlum, svo lengi sem notkun tónlistarinnar er af hálfu einkaaðila og ekki í auglýsingaskyni fyrir tilteknar vörur eða þjónustu.
Ef nota á útgefið hljóðrit fyrir hljóðsetningu, þá þarf eins og áður segir einnig leyfi masterrétthafa. Masterrétthafinn er sá sem á hljóðritið eða upptökuna, þ.e.a.s. útgefandi hljóðritsins, sem getur í sumum tilvikum einnig verið flytjandi eða flytjendurnir á hljóðritinu.
Algengt er að samið sé um sama verð fyrir annars vegar notkun hljóðritsins og hins vegar notkun tónverskins (þ.e.a.s. höfundahlutann). Þegar ekki er um sama aðila að ræða, sem á réttinn á hljóðritinu og verkinu, þá er stundum samið þannig við fyrri aðilann, að viðkomandi leyfisbeiðandi skuldbindur sig til að greiða honum mismuninn síðar, semji leyfisbeiðandi um hærra verð við síðari aðilann (þ.e. höfundinn). Með þessum hætti er tryggt að masterrétthafi og rétthafi höfundarréttar lagsins fái greitt jafnhátt leyfisgjald.
Það er síðan á ábyrgð útgefandans/masterrétthafans að deila sinni greiðslu með aðalflytjanda hljóðritsins í samræmi við ákvæði útgáfusamnings þeirra á milli. Venjulega er búið að ganga frá uppkaupum á rétti aukaflytjenda í þessu sambandi.
Ef ekki er skýrt í útgáfusamningi að útgefandi fari með þennan rétt til samninga við þriðju aðila og um uppgjör á slíkum greiðslum til flytjenda, þá er eðlilegt að leyfisbeiðendur semji sérstaklega við aðalflytjanda. Nánar má fræðast um útgáfusamninga annars staðar á heimasíðu STEFs.
Tónsetningarleyfi NCB
Fyrir framleiðslu sjónvarpsþátta svo og stuttmynda og heimildamynda til sýninga í sjónvarpi bjóðast framleiðendum hin svokölluðu hljóðsetningarleyfi NCBk, skv. staðlaðri verðskrá NCB.
Hljóðsetningarleyfi NCB geta einnig náð til leikinna dramaþáttaráða, svo lengi sem dreifingin er eingöngu á Norðurlöndunum. Að öðru leyti getur leyfi NCB náð til alls heimsins. Athygli er vakin á því að NCB-leyfin ná eingöngu til höfundarhluta lagsins, en ekki til upptökunnar (masterréttarins). Slík leyfi þarf að sækja til viðkomandi útgefanda hljóðritsins.
Sótt er um leyfi til NCB í gegnum heimasíðuna http://www.ncb.dk.
Þar sem ofangreindum tilvikum sleppir verða höfundar að sjá alfarið sjálfir um að semja um hljóðsetningu. STEF getur í slíkum tilvikum veitt höfundum ráðgjöf við samningsgerðina. Hafa verður í huga að samningsgerð um tónlist í kvikmynd er nokkuð ólík, eftir því hvort um er að ræða frumsamda tónlist fyrir kvikmynd (e. original score) eða hvort verið er að kaupa rétt til að nota tiltekið áður útgefið lag í kvikmynd eða sjónvarpsefni. Um slíka samningsgerð er hægt að lesa meira hér á síðunnu, undir liðnum „Samningar um kvikmyndatónlist“.
Fróðleikur um leyfismál
Við tónsetningu, það er að segja þegar tónlist er skeytt saman við mynd, í framleiðslu til notkunar á Íslandi greiðir leyfishafi þóknum sem nemur 10% álagningu á árlegum leyfiskostnaði samkvæmt þeirri verðskrá sem á við viðkomandi framleiðslu, þó aldrei lægra en lágmarksverð 6.100 kr. per framleiðslu og ár. Þetta tónsetningarleyfi er ávallt veitt í tengslum við önnur leyfi STEFs.
Leyfið gildir einungis fyrir tónsetningu fyrir smærri verkefni. Sem dæmi um slíkt má nefna fyrirtækjakynningar (innanhúss eða milli fyrirtækja), notkun á netinu, verkefni í fræðslustarfsemi, líkamsræktarmyndbönd, listverkefni, tónleika, trúarþjónustur eða önnur minni verkefni. Ekki er þörf á sérstöku tónsetningarleyfi ef framleiðsluna er eingöngu að finna á miðlunum Facebook, Instagram eða YouTube.
Leyfið gildir ekki fyrir verk sem flokkast undir stórréttindi eins og óperur, söngleiki eða leikverk. Ber þá að hafa samband við höfunda beint til að afla leyfis.
Leyfið gildir ekki fyrir auglýsingamyndbönd eða annað sem flokkast getur sem auglýsingar, einkennisstef þátta, sjónvarpsþætti eða samsvarandi framleiðslu fyrir netið, dramaþætti, kvikmyndir, heimildamyndir eða fyrirtækjamyndbönd sem sýnd eru opinberlega.
Samþykkt af stjórn STEFs 4. október 2021
Framleiðendum ber skylda til að útbúa svokallað „cue sheet“ yfir alla tónlistarnotkun í hverjum þætti eða kvikmynd. Innlendir framleiðendur, þ.m.t. sjónvarpsstöðvar, þurfa að skila slíkum skýrslum til STEFs, til að tryggja greiðslur skili sér með réttum hætti til tónhöfunda.
Cue sheet er n.k. skýrsla sem fylgir sjónvarps- og kvikmyndum og geymir upplýsingar um alla þá tónlist sem fram kemur í viðkomandi mynd/þætti, jafnt í forgrunni sem í bakgrunni. Ef um nýja/frumsamda tónlist er að ræða, þarf tónskáldið einnig að passa upp á að skrá hana hjá STEFi (alveg eins og gert er með önnur tónverk/lög). Skráning verka fer fram í gegnum „Mínar síður“. Ef verk eða tónspor (e. score) er ekki til á skrá, þá er ekki hægt að tengja það við cue sheet og skrá flutning á það.
Hér má finna eyðublað/grind af alþjóðlegu „music cue-sheet“ sem hægt er að fylla út.
- Hægt er að sækja um aðild til leitar í CIS-NET, hinum alþjóðlega gagnabanka CISAC, sem geymir þúsundir kvikmyndaskýrslna (Cue-Sheets), með því að senda netpóst á pubnet@cisac.org.
- Hér er hægt að leita eftir nöfnum höfunda og sjá skrá yfir þau verk þeirra sem skráð eru í alþjóðakerfið og finna kennitölur þeirra verka.
- Hér er hægt að leita eftir upplýsingum um lög eftir alþjóðlegum kennitöulum (ISWC) laga.

