—
Tónlist í loftförum
—
Verðskrá fyrir tónlistarflutning í flugvélum
Fyrir tónlist sem er flutt í flugtaki og lendingu (e: boarding music) skal greiða kr. 28.051 á mánuði fyrir hvert loftfar.
Fyrir flutning tónverka í afþreyingarkerfi um borð í flugvélum, s.s. tónverka í kvikmyndum og öðru efni sem sýnt er á sjónvarpsskjáum (e: in-flight music), skal greiða kr. 12.022 á mánuði fyrir hvert loftfar.
Stærð loftfars miðar við farþegaþotu fyrir allt að 200 manns.
Innifalið í báðum upphæðum er greiðsla til SFH (Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda).
Kostnaður á hverja flugvél pr. mánuð (verðskrá október 2024):
Boarding: | In-flight: | Samtals: | |
STEF: | 17.532 kr. | 9.248 kr. | 26.780 kr. |
SFH: | 10.519 kr. | 2.774 kr. | 13.293 kr. |
Samtals: | 28.051 kr. | 12.022 kr. | 40.073 kr. |