TÓNLIST Í HLAUPUM
Verðskrá fyrir tónlist í hlaupum og sambærilegum skipulögðum viðburðum (sept. 2026):
| Fjöldi þátttakenda | Til STEFs (kr.) | Til SFH (kr.) | Samtals kr. |
|---|---|---|---|
| 500 | 15.599 | 9.359 | 24.958 |
| 1.000 | 20.864 | 12.518 | 33.382 |
| 1.500 | 31.197 | 18.718 | 49.916 |
| 2.000 | 41.726 | 25.036 | 66.762 |
| 3.000 | 62.590 | 37.554 | 100.144 |
| 4.000 | 83.453 | 50.072 | 133.524 |
| 5.000 | 104.317 | 62.590 | 166.907 |
| 10.000 | 208.632 | 125.179 | 333.811 |
| 20.000 | 409.464 | 245.678 | 655.142 |
Ath: 40% álag bætist við STEF-gjaldið ef lifandi tónlist er flutt á sviði fyrir og eftir hlaup.
Tónlist á vörusýningum
Tónlist er alltaf lykilþáttur í því að skapa hæfilega stemmningu. Það á jafnt við um vörusýningar, sem og hótel, veitingastaði, snyrtistofur eða hvar sem þjónusta er seld eða kynnt.
Fyrir tónlist á vörusýningum (vörumessum) og á öðrum sambærilegum viðburðum sem felur í sér bakgrunnstónlist fyrir allt sýningarsvæðið skal greiða sem hér greinir (Laugardalshöll og sambærilegt húsnæði, þrír flokkar er miðast við fjölda):
| Flokkur 1 | Kr. 6.000 pr. hvern dag fyrir allt að 5.000 gesti |
| Flokkur 2 | Kr. 8.000 pr. hvern dag fyrir allt að 10.000 gesti |
| Flokkur 3 | Kr. 10.000 pr. hvern dag fyrir fleiri en 10.000 gesti |

