Oft berast STEFi fyrirspurnir frá meðlimum vegna skattamála. T.d. gerist það reglulega að höfundar flytjast búferlum til útlanda, sem hefur eðlilega í för með sér ýmsar breytingar, m.a. á skattaumhverfi og reglum. Einnig fylgja því skattalegar breytingar þegar höfundar gera samninga við forleggjara (e. publishers), svo annað dæmi sé tekið. Hér á vefsvæðinu hefur verið sett upp sérstök kynningarsíða varðandi skattamál, sem geymir gagnlegar upplýsingar og skýringar á litbrigðum skattaflórunnar.