Verðlaunuð á menningarnótt

Á menningarnæturtónleikum STEFs þann 22. ágúst sl. veitti stjórn STEFs þremur höfundum sérstök hvatningarverðlaun. Eiga verðlaunahafar það sameiginlegt að hafa uppá síðkastið sýnt „ört vaxandi árangur sem tónhöfundar“, eins og segir í ályktun stjórnar STEFs og á tilheyrandi verðlaunaskjölum.

Með viðurkenningunum vill stjórnin hvetja þessa höfunda til frekari dáða og um leið vekja athygli á árangri þeirra. Slíkar viðurkenningar voru fyrst afhentar árið 2024, þannig að þetta er í þriðja sinn það er gert.

Í ár hlutu viðurkenningar þau Daníel Moroshkin, sem notar listamannsnafnið Daniil, Elín Sif Halldórsdóttir, sem notar listamannsnafnið Elín Hall, og Friðrik Margrétar-Guðmundsson.

Við óskum þeim til hamingju og vonumst til þess að þessi viðurkenning megi verða þeim staksteinn á tónlistarvegferðinni.

Meðfylgjandi myndir tók Þórdís Erla Ágústsdóttir.

Scroll to Top