SyncCamp ’24 í Póllandi

STEF styrkir tvo höfunda til þátttöku í lagamíðabúðunum SyncCamp, sem fram fara í bænum Zakopane í Póllandi dagana 17.-22. maí n.k. Um er að ræða kvikmynda- og auglýsingatónlist.

Tónlistarstjórar (e. music supervisors) verða þátttakendum til ráðgjafar og tengja tónlistina við hin ýmsu verkefni. Lögð er áhersla á hópavinnu og tengslamyndun.

Það eru ZAIKS, systursamtök STEFs í Póllandi og Music Export Poland sem standa fyrir búðunum. Þátttakendur verða alls 16 og koma úr ýmsum áttum.

Búðirnar hafa verið haldnar um nokkurra ára skeið og er jafnan einrómur um ágæti þeirra á meðal þátttakenda.

Hátíðin Film Music Festiaval í Krakaw stendur yfir á sama tíma og býðst þátttakendum aðgangur að hátíðinni.

Umsækjandi þarf að:

  • hafa nokkra reynslu af því að semja kvikmyndatónlist.
  • hafa góða enskukunnáttu.
  • hafa reynslu af því að vinna í tónlistarforritum á borð við Logic, ProTools, o.fl.
  • hafa reynslu af samvinnu við tónsköpun.

Ferðasjóður STEFs greiðir kostnað við flug þátttakanda, en gisting, morgun- og kvöldverður, sem og kostnaður við búðirnar er í boði ZAIKS.

Áhugasamir geta sótt um með því að senda tölvupóst á info@stef.is undir yfirskriftinni „Pólland 2024“. Umsókn þarf að innihalda stutta greinagerð um umsækjanda og verk hans/hennar. Eðlilega er það grundvallarskilyrði að umsækjandi sé fullgildur meðlimur STEFs.

Umsóknarfrestur er til 25. mars n.k.

Scroll to Top