Reglulega berast STEFi fyrirspurnir frá fyrirtækjum og framleiðendum um það, hvernig haga skuli málum og hverju þurfi að huga að við notkun á tónlist í auglýsingum. Það er vissulega að ýmsu að hyggja í því sambandi.
Við höfum tekið saman og birt hér á heimasíðunni punkta hvað þetta varðar, nk. gátlista og leiðbeiningar, sem ættu að nýtast þeim sem hyggjast nota áður útgefna tónlist í auglýsingaskyni. Einnig er þetta ágæt yfirferð fyrir höfunda, flytjendur og útgefendur.
Gjörið svo vel að kynna ykkur málið með því að smella hér.

