Nú liggja fyrir framboð til setu í fulltrúaráði STEFs 2026-2028. Alls bárust 34 framboð, þannig að kjósendur hafa í mörg horn að líta. Ánægjulegt og þakkarverkt er að svo margir sýni því áhuga að sinna trúnaðarstörfum.
Kosningarnar fara fram með rafrænum hætti og á næstunni fá kjósendur sendan kosningahlekk með útskýringum. Í millitíðinni er hægt að kynna sér frambjóðendur; Hér er sérstök kynningarsíða.
Hverjir geta kosið?
Höfundar og aðrir rétthafar sem gert hafa aðildarsamning við STEF hafa atkvæðisrétt og eru kjörgengir í fulltrúaráðið, hafi þeir fengið úthlutað að lágmarki samtals 125.000 kr. á undangengnum þremur árum (þ.e. 2023–2025).
Þeim, sem einhverra hluta vegna hafa ekki tök á að kjósa rafrænt, býðst að kjósa með gamla laginu og fá sendan pappírskjörseðil. Viðkomandi verður þó að óska eftir því sérstaklega með rafpósti eða símleiðis, en slík beiðni verður að berast fyrir 13. mars n.k.

