Netmiðillinn Kulturmonitor í Danmörku greindi frá því á dögunum, að bandaríski netmiðillinn The Atlantic hafi nýlega birt upplýsingar sem byggja á leka úr gagnasöfnum gervigreindarfyrirtækja, sem framleiða tónlist og bjóða notendum gegn gjaldi.
Þessar upplýsingar leiða m.a. í ljós með óyggjandi hætti, að fjöldi höfundaréttarvarinna verka eftir danska tónhöfunda séu notuð til að mata gervigreindarvélar.
Af þessu tilefni var haft eftir Nicky Trebbien, stjórnanda hjá Koda, systurfélagi STEFs í Danmörku:
„Gervigreindarþjónustur halda áfram að mata og efla vélar sínar – en án leyfis eða endurgjalds til listamannanna. Þessi afhjúpun ætti að verða stjórnmálafólki umhugsunarefni. Við hjá Koda munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að þrýsta á um að pólitíkusar ranki við sér og að gripið verði til viðeigandi aðgerða, jafnt hér sem í Evrópu.“
Sjá nánar hér.


