STEF auglýsir nú eftir þátttakendum í verkefnið „Vindur í seglum“. Um er að ræða n.k. „mentor-prógramm“ sem ætlað er að styðja og aðstoða kvenhöfunda og kynsegin fólk við að fóta sig í bransanum og koma verkum á framfæri, í von um að vinna á kynjahalla innan tónlistargeirans. Markmiðið er að þátttakendur öðlist kunnáttu til að skila frá sér vel unnum verkum og koma þeim á framfæri.
Fyrst var staðið fyrir verkefninu árið 2020, þá í tilraunaskyni. Það mæltist mjög vel fyrir vel og var afráðið að endurtaka það á tveggja ára fresti, þannig að nú er því hleypt af stokkum í fjórða skipti.
Hér með er skorað á áhugasamar konur og kynsegin höfunda að sækja um þátttöku. Smellið hér fyrir allar nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 17. september.


