Á þriðja tug þátttökuumsókna bárust í verkefnið „Vindur í seglum“, sem nú er endurtekið í þriðja skiptið. Var Jafnréttisnefnd STEFs sem fyrr vandi á höndum, því margar voru áhugaverðar. En nefndin hefur afráðið að það verði þær Helga Rún Guðmundsdóttir, Malen Áskelsdóttir og Anna Róshildur sem taka þátt að þessu sinni.
Hér er að finna nánari upplýsingar um þátttakendur, sem og kynning á sjálfu verkefninu og eðli þess.