Á dögunum var í fyrsta skipti úthlutað styrkjum úr hinum nýja Tónheilsusjóði STEFs, hvers markmið er að auðvelda aðgengi að tónlist í heilsueflandi skyni.
Sjóðurinn styrkir tónlistarfólk og/eða stofnanir og samtök til að flytja tónlist eða vinna með tónlist á annan hátt í heilsueflandi skyni. Slíkt getur t.a.m. verið á hjúkrunarheimilum, fangelsum, sjúkrahúsum eða sambýlum eða á öðrum stöðum, þar sem aðilar, sem koma að lýðheilsuverkefnum, halda viðburði eða samkomur. Þá getur sjóðurinn styrkt rannsóknarverkefni er snúa að þessum málaflokki.
Sjóðurinn er hugmynd hjónanna Andrésar Arnalds og Guðrúnar Pálmadóttur og var henni hrint í framkvæmd af börnum þeirra, Ólafi, Fríðu, Ásdísi og Ara, með liðsinni STEFs. Stofnframlag sjóðsins kemur frá hjónunum, en STEF annast umsýslu sjóðsins án þóknunar.
Það bárust alls 39 umsóknir. Að þessu sinni var úthlutað samtals rúmlega sex milljónum og hlutu eftirfarandi styrki:
- Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir: Sameiginlegir þræðir – Tónlist, sögur og samtal.
- Þórður Kári Steinþórsson: Hljómafl. Uppfærsla búnaðar á geðdeild Landspítalans, til meðferðar og virkni ungs fólks með geðrofssjúkdóma.
- Bjarni Lárus Hall: Samsöngur með heldri borgurum Reykjavíkur.
- Endurhæfingarteymi Hrafnistu: Kaup á INMU RELAX skynörvunartækjum.
- Magnea Tómasdóttir: Söngvinir – söngæfingar fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma.
- Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths: Tónlistarsmiðjur á kvennadeild fangelsisins við Hólmsheiði.
- Stefán Helgi Stefánsson: Elligleði.
Meðfylgjandi myndir voru teknar annars vegar þegar sjóðurinn var stofnaður, hins vegar við afhendingu fyrstu styrkja fyrir skemmstu.





