Þjónustukönnun STEFs 2024

Nú stendur yfir þjónustukönnun STEFs, þar sem við leitumst eftir því að greina álit og viðhorf rétthafa til STEFs, sem og hug til áskorana sem höfundar standa frammi fyrir nú um stundir.

Við biðjum rétthafa vinsamlegast að taka þátt með því að smella hér. Það tekur aðeins um 6 mínútur að svara könnuninni, ígildi tveggja Eurovision-laga 😉

Svörin sem þátttakendur veita eru að sjálfsögðu ónafngreinanleg. En þeir sem vilja geta skilið eftir netfang við lok könnunar, en það fer í raflukkupott sem dregið verður úr og hlýtur heppinn þátttakandi gjafabréf á tónleika í Hörpu.

 

Scroll to Top