Við setningu „Myrkra músíkdaga“ á dögunum var Karólínu Eiríksdóttur veitt heiðursmeki STEFs, fyrir framúrskarandi störf í þágu íslensks tónlistarlífs, bæði sem tónskáld og fyrir ómetanlegt framlag í stjórnum, ráðum og nefndum í tónlistarlífinu.
Hljómsveitarverk Karólínu hafa öll verið flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands, en einnig hljómað víða um heim. Þá hefur hún samið sex óperur, þar á meðal „Magnús María“, sem tilnefnd var til Tónlistarverðlauna Norðurlanda árið 2016.
Í gegnum árin hefur Karólína m.a. setið í stjórnum Íslenskrar tónverkamiðstöðvar, Tónskáldafélags Íslands, Listahátíðar í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.
Með Karólína á meðfylgjandi mynd eru Páll Ragnar Pálsson, stjórnarformaður STEFs og Magnús Jóhann Ragnarsson, stjórnarmaður. Myndina tók Sunna Ben.

