Fulltrúaráðskosning er hafin!

Kosning til fulltrúaráðs STEFs 2026-28 er hafin. Hún fer fram með rafrænum hætti og styðst við rafræn skilríki.

Atkvæðisbærir meðlimir eiga að hafa fengið sendan rafpóst með leiðbeiningum. Hafa ber í huga, að möguleiki er að fjölpóstsendingar rati í rusl- eða ‘promotion’-pósthólf.

Hafi höfundar á kjörskrá einhverra hluta vegna ekki fundið póstinn, þá má smella hér og kjósa.

Við hvetjum rétthafa til að nýta kosningarétt sinn. Kosningin verður opin til miðnættis þann 12. apríl.

Til glöggvunar (um fulltrúaráð, úr samþykktum STEFs):

  • Þeir höfundar og aðrir rétthafar hafa atkvæðisrétt og eru kjörgengir í fulltrúaráðið, hafi þeir fengið úthlutað að lágmarki samtals 125.000 kr. á undangengnum þremur árum (þ.e. 2023–2025).

Rétt er að benda höfundum á að uppfæra skráð netföng sín hjá STEFi, þ.e.a.s. ef breyting hefur orðið nýlega. Það er hægt að gera í gegnum „Mínar síður“. Æskilegt er að senda tilkynningu um breytingu á info@stef.is.

Scroll to Top