Helga Guðný nýr sölu- og innheimtustjóri

Helga Guðný Sigurðardóttir tók nýlega við starfi sölu- og innheimtustjóra hjá STEFi. Hún hefur BA-próf í frönsku, diploma í fjármálum og rekstri og MBA-gráðu frá HR. Áður hefur hún m.a. starfað hjá Landsteinum, Nýherja (Origo) og Motus.

Við bjóðum Helgu Guðnýju hjartanlega velkomna til starfa fyrir tónhöfunda.

Scroll to Top