Þormóður hlaut „Langspilið“ 2026

Á dögunum var „Langspil“ ársins afhent, en það eru sérstök verðlaun STEFs, árlega veitt höfundi sem skarað hefur fram úr og náð eftirtektarverðum árangri á nýliðnu ári.
Verðlaunin að þessu sinni hlaut Þormóður Eiríksson, sem á undanförnum árum hefur verið einn eftirsóttasti upptökustjóri og lagasmiður landsins.

Það má segja að Þormóður sé einn af þessum ómissandi lykilmönnum „á bak við tjöldin“, sem við heyrum ekki alltaf um eða áttum okkur á. Listafólk eins og Hr. Hnetusmjör, Aron Can, Birnir, Emmsje Gauti, Friðrik Dór, Jói P & Króli og GDRN — svo einhverjir séu nefndir — eiga það öll sameiginlegt að hafa unnið og samið tónlist í náinni samvinnu við smellasmiðinn Þormóð.

Hann hefur einstakt lag á því að semja músík sem nær til fólks. Þar blandast saman náttúrulegir hæfileikar og mikil og markviss vinna, en hann hefur greint frá því að hann geri eigin rannsóknir þegar lögin eru á teikniborðinu; athugi hvort þau virki og hreyfi við fólki og slípar þau síðan til eftir því sem honum þykir þurfa.

Þótt Þormóður sé lítt þekktur meðal almennings og geti gengið óáreittur um ganga Kringlunnar, þá er óhætt að fullyrða að hver einasti Íslendingur — a.m.k. undir fimmtugu — þekki lög eftir hann, sem þau hafa ýmist heyrt í útvarpi eða úti á lífinu á undanförnum árum.

Við óskum Þormóði til lukku og vonumst til að viðurkenningin verði honum hvatning og innblástur að fleiri smellum.

Meðfylgjandi myndir tók Þórdís Erla Ágústsdóttir


Scroll to Top