Aðalfundur STEFs fór fram í gær. Þar kom nýkjörið fulltrúaráð saman til fyrsta fundar, en kosningar fóru fram í liðnum mánuði. Formaður var kjörinn Hildigunnur Rúnarsdóttir.
Eitt af fyrstu verkum nýs ráðs er einatt að kjósa nýja stjórn STEFs til næstu tveggja ára, en stjórnina skipa sjö aðilar úr hópi ráðsins. Nýkjörna stjórn skipa:
- Bragi Valdimar Skúlason (formaður)
- Páll Ragnar Pálsson (varaformaður)
- Sóley Stefánsdóttir
- Magnús Jóhann Ragnarsson
- Hrafnkell Pálmarsson
- Hallur Ingólfsson
- María Huld Markan
Eftir fundinn í gær voru meðfylgjandi myndir teknar, af stjórninni annars vegar, hins vegar af bróðurparti ráðsins, en tveir fulltrúa þurftu frá að hverfa skömmu áður en fundi lauk. (Mynd: Víkingur)




