Miðsumarsúthlutun hefur nú farið fram. Hún er fyrri hluti aðalúthlutunar 2026, en seinni hlutinn greiðist í desember. Nú nemur miðsumarsúthlutun rúmlega 206 milljónum. Er það um 23% hækkun frá því í fyrrasumar, en munar þar mestu um aukna úthlutun vegna s.k. S-VOD þjónustu frá sjónavarpi. Aðalúthlutun ár hvert tekur til spilunar innanlands, en áætlað er að samtals muni aðalúthlutun á þessu ár verða um það bil 270 milljónir.
Miðsumarsúthlutun í ár felur í sér eftirfarandi:
- Hartnær 80% af spilun á útvarps- og sjónvarpsstöðvum á árinu 2025.
- Hluta af skilgreindri bakgrunnstónlist („fyrirtækjastreymi“) á árinu 2025.
- Hluti af óskilgreindri bakgrunnstónlist á árinu 2025.
- Spilun í kvikmyndahúsum á árinu 2025.
Seinni hlutinn, í desember, mun síðan fela í sér u.þ.b. 20% af útvarps- og sjónvarpsspilun og hluta af greiðslu fyrir bakgrunnstónlist. Einnig verður þá skv. venju greitt fyrir frumflutning á árinu 2025, tónlist í kirkjuathöfnum sem og eintakagerð til einkanota (IHM)


