Höfundarnir okkar (4)
Í vetur vekjum við reglulega athygli á tón- og textahöfundum sem sett hafa svip á íslenskt tónlistarlíf fyrr og síðar.
Næstur er Jónas Friðrik Guðnason (f. 1945).
Jónas fæddist á Raufarhöfn og bjó þar alla tíð, utan fimm vetur, þá hann leigði kvistherbergi í Reykjavík, lífsreynsla sem rataði í þekktan söngtexta hans, í flutningi hljómsveitarinnar Ríó tríó.
Forsprakki tríósins, Helgi Pétursson, hafði veitt kveðskap Jónasar athygli á ofanverðum 7. áratugnum, í tímaritinu „Samvinnan“, sem birti nokkur ljóða hans. Leiddi það til langvarandi samvinnu tríósins við Jónas, varð hann fljótlega hálfgert hirðskáld þeirra og samdi langflesta texta þessarar vinsælu sveitar.
Jónas hafði einkar gott lag á textasmíðum, var hnyttinn og húmorískur þegar hentaði, en lýrískur og ljúfur ef svo bar við.
Eftir nokkra smelli með Ríó tóku aðrir að leita til Jónasar eftir textum, sem iðulega þóttu vel lukkaðir, ekki aðeins haganlega gjörðir, heldur var til þess tekið að textar hans runnu jafnan sérdeilis vel af vörum, enda var Jónas músíkalskur og hafði góða tilfinningu fyrir því hvað virkaði með hliðsjón af hrynjandi.
Af þekktustu textum Jónasar er vitaskuld hæfandi að nefna fyrst nokkur af lögum Ríó, t.d. ‘Verst af öllu’, ‘Tár í tómið’, ‘Eitthvað undarlegt’, ‘Stebbi og Lína’ og ‘Eina nótt’, svo fáein séu tilgreind.
Jónas átti einnig langvarandi samstarf við Björgvin Halldórsson, gerði fyrir hann gnótt þekktra texta, svo sem ‘Ég skal syngja fyrir þig’, ‘Ég bíð þín undir bláum mána’, ‘Ég er ennþá þessi asni sem þú kysstir þá’, ‘Í útvarpinu heyrði ég lag’ og ‘Gullvagninn’.
Eins er vert að geta nokkurra þekktra jólatexta Jónasar, eins og ‘Léttur yfir jólin’, ‘Ef ég nenni’, ‘Þú komst með jólin til mín’, ‘Mamma’ og ‘Þú og ég og jól’.
Jónas lést árið 2023. Eftir hann liggja vel ríflega 400 útgefnir söngtextar.


