—
Skráðu þig í STEF
—
Aðild að STEFi er ókeypis og jafnframt sú þjónusta sem starfsfólk samtakanna veitir einstökum rétthöfum.
Til að gerast meðlimur í STEFi þarf að skila inn beiðni um aðild. Þægilegast er að gera það rafrænt hér á heimasíðunni, með rafrænni undirskrift. Berist beiðni um aðild frá ólögráða einstaklingi, þá þarf forráðamaður að samþykkja aðildina og er það þá forráðamaðurinn sem undirritar aðildarsamninginn rafrænt.
Samningurinn veitir STEFi einkaumboð til þess að gæta hagsmuna hlutaðeigandi tón- eða textahöfundar. STEF fer þannig með einkaumboð höfundar til að veita leyfi til opinbers flutnings verka hans/hennar upp að ákveðnum mörkum. Umboðið nær þó ekki til svokallaðra „stórréttinda“ eða til tónsetningar nema að ákveðnu leyti. Hér er umfjöllun um stórréttindi. Hér er má síðan fræðast um tónsetningu.
Mikilvægt er að hafa í huga, að þegar höfundur flytur eigin verk, t.d. á tónleikum, þá fær viðkomandi greitt beint sem flytjandi, en STEF innheimtir fyrir opinberan flutning höfundarverkanna. STEF úthlutar síðan höfundaréttartekjunum áfram til höfundarins og hugsanlegra meðhöfunda. Þetta er gert til þess að vernda einstaka höfunda fyrir ásælni þeirra sem vilja fá að nota tónlist og tilheyrandi texta fyrir lítið sem ekkert.
- Hér geturðu kynnt þér aðildarsamninginn áður en þú skráir þig með rafrænum skilríkjum.
- Útskýringar og leiðbeiningar um aðildarsamning að STEFi.
Skráning verka - Til fróðleiks
Skráning verka í gagnagrunn STEFs er forsenda þess að STEF geti úthlutað tekjum sem innheimtast fyrir flutning verkanna.
Skráning verka/laga fer fram í gegnum Mínar síður. Hafi meðlimur STEFs ekki aðgang að Mínum síðum þá er hægt að smella á „Gleymt lykilorð“ til að stofna slíkan aðgang.
Við skráningu verks þarf höfundur að gefa upp heiti verks, lengd og flytjanda (ef það hefur verið gefið út með tilteknum flytjanda) og síðan auðvitað hverjir höfundarnir eru og hlutverk þeirra (hvort þeir eru tónskáld, textahöfundar eða útsetjarar). Samtala hlutfalls allra skráðra höfunda þarf ávallt að ná 100%.
Þá er einnig hægt að skrá svokallaðan ISRC-kóða (International Standard Recording Code) þeirra hljóðrita sem hafa verið gefin út með viðkomandi verki. Hafi verkið verið gefið út í mörgum mismunandi útgáfum, þá er hægt að skrá fleiri en einn ISRC-kóða.
Hafi lagið verið samið af fleiri höfundum en þeim sem annast skráninguna, þá er hægt að finna þá með aðstoð flettilista, þ.e.a.s. ef þeir eru meðlimir í STEFi. Séu meðhöfundar meðlimir í erlendum höfundaréttarsamtökum, þá þarf að gefa upp alþjóðlegt höfundanúmer þeirra (IPI-númer).
Séu meðhöfundar ekki meðlimir í STEFi né öðrum höfundaréttarsamtökum, þá er hægt að stofna þá í kerfinu. Ekki verður þó hægt að úthluta fyrir verkið nema að mjög takmörkuðu leyti, fyrr en þeir hafa gengið frá skráningu í STEF og þar með fengið sitt alþjóðlega IPI-númer.
Meðhöfundar sem skráðir eru fá tilkynningu um skráninguna á það netfang sem þeir hafa skráð hjá STEFi. Berist engin athugasemd um skráninguna innan 7 daga, þá færist verkið inn í gagnagrunn STEFs og telst fullskráð. Nánari leiðbeiningar um skráningarferlið má nálgast undir Mínum síðum.
Leiðbeiningar um skiptingu höfundaréttar milli höfunda má finna á öðrum stað hér á heimasíðunni.