Miðsumarsúthlutun 168 milljónir

Miðsumarsúthlutun hefur nú farið fram. Hún er fyrri hluti aðalúthlutunar 2025, en seinni hlutinn greiðist í desember. Miðsumarsúthlutun nemur nú um 168 milljónum. Aðalúthlutun tekur til spilunar innanlands, en áætlað er að samtals muni aðalúthlutun verða á bilinu 280-300 milljónum.

Miðsumarsúthlutun í ár felur í sér eftirfarandi:

  • Hartnær 80% af spilun á útvarps- og sjónvarpsstöðvum á árinu 2024.
  • Hluta af skilgreindri bakgrunnstónlist („fyrirtækjastreymi“) á árinu 2024.
  • Hluti af óskilgreindri bakgrunnstónlist á árinu 2024.
  • Spilun í kvikmyndahúsum á árinu 2024.
  • Spilun í vélum Icelandair á árinu 2024.

Seinni hlutinn, í desember, mun síðan fela í sér u.þ.b. 20% af útvarps- og sjónvarpsspilun og hluta af greiðslu fyrir bakgrunnstónlist. Einnig verður þá skv. venju greitt fyrir frumflutning á árinu 2024, tónlist í kirkjuathöfnum sem og eintakagerð til einkanota (IHM).

Á meðfylgjandi mynd fá sjá þróun miðsumarsúthlutunar undanfarin ár (smella á mynd til að stækka).

Scroll to Top