KK hlýtur heiðursmerki

Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, fagnaði sjötugsafmæli í liðinni viku og hélt af því tilefni tónleika í Háskólabíói.

KK fæddist og bjó fyrsta áratug ævinnar í Bandaríkjunum, því næst í ríflega áratug hér heima, en fluttist svo til Svíþjóðar og bjó þar í um 13 ár.

Fljótlega eftir heimkomu, seint á níunda áratugnum, fór að bera á Kristjáni í músíkinni hér heima. Hann vakti fljótt athygli fyrir taktfasta og hrífandi spilamennsku og honum fylgdi ferskur andvari, þótt hann væri þá kominn yfir þrítugt og að tónlistin hvíldi á gömlum blús- og soul-grunni.

Fyrsta platan, „The Lucky One“, kom út árið 1991 og ári síðar „Bein leið“, sem sló rækilega í gegn. Síðan komu plöturnar ein af annarri og Kristján hreif landa sína á næstu áratugum með hreinni og beinni framkomu og einlægu fasi, en segja má að lög hans og textar beri einnig flest þau einkenni.

Stjórn STEFs fannst vel til fundið að heiðra KK á þessum tímamótum. Laumuðust fjórir stjórnarmenn uppá svið Háskólabíós og veittu honum heiðursmerki samtakanna, með hjartans þökkum fyrir hans væna framlag til íslenskrar tónlistar í gegnum árin.

Meðfylgjandi mynd tók Þórdís Erla Ágústsdóttir.

Scroll to Top