Aðalfundur STEFs var haldinn 21. maí og var nýkjörnu fulltrúaráði þar kynntur ársreikningur fyrir 2025 og hann samþykktur.
Úthlutun STEFs til rétthafa, innlendra sem erlendra, nam um 964 milljónum króna í fyrra, en heildartekjur árið 2025 námu um 1,5 milljarði, sem er tæp 20% aukning frá fyrra ári.
Árs- og gagnsæisskýrslu 2025-26 er hægt að sjá með því að smella hérna, en auk lykiltalna úr rekstri er þar er að finna fjölmargar fréttir og fróðleik frá starfsárinu. Ársreikning STEFs 2025 er að finna hérna.
Forsíðu ársskýrslunnar prýðir Björgvin heitinn Halldórsson, sem á hartnær 60 ára ferli hljóðritaði hátt í þúsund lög.


