Tónleikar að degi menningarnætur

Líkt og undanfarin ár stendur STEF fyrir tónleikum í bakgarðinum við Laufásveg 40 að degi menningarnætur, sem í ár ber upp á 22. ágúst.

Að þessu sinni koma fram eftirfarandi listamenn:

  • Elín Hall
  • Silja Rós
  • Kári Egilsson
  • Joey Christ

Tónleikarnir hefjast kl. 16 og standa til kl. 18. Aðgangur er ókeypis og verður gestum boðið upp á kaffi og kex.

Á viðburðinum verður ennfremur þremur ört vaxandi tónhöfundum veitt sérstök viðurkenning STEFs.

Nánar hér.

Scroll to Top