Höfundarnir okkar (1)
Í vetur munum við reglulega vekja athygli á tón- og textahöfundum sem sett hafa svip á íslenskt tónlistarlíf fyrr og síðar.
Hefjum þessa rispu á Jónatani Ólafssyni (f. 1914).
Ungur lærði Jónatan á orgel og píanó. Upp úr tvítugu hóf hann að starfa við hljóðfæraleik, lék svo með ýmsum danshljómsveitum og starfrækti um skeið sveit undir eigin nafni. Samhliða stundaði Jónatan m.a. tónlistarkennslu og stýrði kórum.
Jónatan gaf sig fljótlega nokkuð að lagasmíðum, en fyrsta lagið kom út á fjórða áratugnum. Á þessum tíma voru ekki ýkja margir sem fengust við lagasmíðar hérlendis, fluttu músíkantar tíðum erlend lög, þó oft við íslenska texta.
Segja má að fyrsti ‘smellur’ Jónatans hafi verið „Kvöldkyrrð“, sem hinn vinsæli söngvari, Sigurður Ólafsson, bróðir Jónatans, söng inn á plötu 1948. Síðan komu lögin allmörg á næstu árum.
Með þekktustu lögum Jónatans eru „Í landhelginni (12 mílur)“ og „Landleguvalsinn“, hvort tveggja við texta Núma Þorgbergssonar, en Haukur Morthens gerði bæði lögin afar vinsæl.
Vert er einnig að nefna „Laus og liðugur“ (jafnframt við texta Núma), sem annar Morthens gerði eftirminnilega skil í sumpart ‘pönkaðri’ útsetningu árið 1980, en lagið var fyrrum feykivinsælt, bæði í flutningi Ragnars Bjarnasonar og Lúdó & Stefáns.
Jónatan lést árið 1997.


