Samkeppni um nýtt tónverk!

Tónskáldasjóður Jóns Leifs, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, auglýsir eftir tillögum að nýju tónverki fyrir sinfóníuhljómsveit.

Úr innsendum tillögum verður einn höfundur valinn og fær pöntun að verki fyrir SÍ, sem frumflutt verður á Myrkum Músíkdögum 2028.

Greiddar verða 2.200.000 kr. fyrir verkið.

Tillögur skulu berast á skrifstofu STEFs eigi síðar en 11. desember 2026.

Hér má fræðast nánar um keppnina.

Scroll to Top