Kosning til fulltrúaráðs STEFs 2024-2026 hefst í dag. Hún fer fram með rafrænum hætti og styðst við rafræn skilríki.
Atkvæðisbærir meðlimir hafa nú fengið sendan rafpóst með tilheyrandi leiðbeiningum (hafið í huga, að möguleiki er að póstsendingar rati í ruslpósthólf).
Við hvetjum rétthafa til að nýta kosningarétt sinn.Kosningin verður opin í viku, henni lýkur á hádegi þann 26. mars.