Höfundarnir okkar (Jón Sigurðsson)

Höfundarnir okkar (3)

Í vetur vekjum við reglulega athygli á tón- og textahöfundum sem sett hafa svip á íslenskt tónlistarlíf fyrr og síðar.

Næstur er Jón Sigurðsson (f. 1925).

Jón fæddist að Brúnum í Rangárvallasýslu, en var um tvítugt kominn á höfuðborgarsvæðið, hvar hann bjó og starfaði upp frá því, lengst af í Búnaðarbankanum, sem varð til þess að hann hlaut viðurnefnið „Jón í bankanum“, til aðgreiningar frá þekktum alnöfnum hans í tónlistarbransanum.

Hann varð snemma tónhneigður. Harmonika var lengstum helsta hljóðfæri Jóns, þótt einnig væri hann hagur á fleiri instrúment. Á táningsaldri var Jón farinn að semja lög og texta. Eitt af sínum þekktustu lögum, ‘Komdu í kvöld’, samdi Jón aðeins 14 ára. Sagan segir að það hafi orðið til á hestbaki, en hófasláttur fáksins mun hafa blásið Jóni andann í brjóst.

Nokkru eftir komuna á mölina var Jón farinn að leika með hljómsveitum. Lagni hans við lagasmíðar spurðist út og var mikið til hans leitað, einkum eftir söngtextum. Jón var auk þess góður útsetjari og kom að upptökum margra þekktra sönglaga.

Hann lagði til texta við ýmsa af smellum sjötta áratugarins, sem oftast voru erlendir að uppruna, m.a. ‘Hvar varstu í nótt?’, ‘Fjórir kátir þrestir’, ‘Lóa litla á Brú’, ‘Ég vil fara upp í sveit’, ‘Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig’ og ‘Ég er kominn heim’, en hið síðastnefnda er einn ástsælasti óður Íslandssögunnar.

Síðar komu textarnir ‘Ég fann þig’, ‘Sagan af Nínu og Geira’ og ‘Ég gef þér allt mitt líf’, svo fleiri vinsæl lög séu nefnd.

Sum af þekktustu verkum Jóns eru alfarið eftir hann, m.a. ‘Komdu niður’, ‘Í kjallaranum’, ‘Einsi kaldi úr Eyjunum’ og ‘Úti í Hamborg’, sem alnafni Jóns, kenndur við bassa, söng eftirminnilega með Ragnari Bjarnasyni.

Jón lést árið 1992

Scroll to Top